Gleđileg jól og farsćlt komandi ár!!
30. desember 2008 klukkan 14:07
Jónatan og Halla óska öllum vinum og vandamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hér fylgir smá myndasýning ykkur til yndisauka.
Við höfum það annars gott í Kópavoginum, guttinn verður 6 ára í janúar, ótrúlegt en satt! Hann er nú farinn til föðurs síns og verður fram yfir áramót. Múttan ætlar að vera áfram nokkra daga í viðbót í sælunni á Akureyri. Hafið það öll gott!!
Sumarfrí!
14. júlí 2008 klukkan 22:00
Nú eru Jónatan og mamman í fríi á Norðurlandinu. Við ætluðum að keyra lengri leiðina norður, þ.e. austur á firði og tjalda jafnvel 2 nætur eða svo. Svo var bara spáð rosa roki og rigningu, þannig að við fórum hina hefðbundnu leið og vorum komin til Akureyrar að kvöldi 1. júlí. Jónatan skellti sér í heimsókn á Dalvíkina helgina eftir og fékk að gista 2 nætur hjá Boggu föðursystur. Það var mjög gaman, hann fékk meira að segja að gista í tjaldi fyrri nóttina. Svo skelltum við mæðgin okkur í smá heimsókn í Bárðardalinn, nánar tiltekið í Kálfborgará. Þar fékk Jónatan að leika við Benna frænda sinn. Svo tókum við líka Pjakk með. Pjakkur er hundurinn hennar Huldu móðursystur og við búum einmitt þar núna. Hér er mynd af frændunum.

Síðastliðinn laugardag fórum við á ættarmót á Stafni í Reykjadal. Við tókum nýja fellanlega hjólhýsið þeirra afa Jóns og ömmu Sissu með, því þau voru ekki að nota það sjálf, þar sem þau voru stödd í Færeyjum að dansa þjóðdansa. Það var voða notalegt að sofa í hjólhýsinu og mömmunni og Huldu frænku tókst bara nokkuð vel upp með þetta allt saman. Hér erum við mæðgin. (Jónatan sagðist vera eins og Morrinn í Múmínálfunum...sem er reyndar alveg rétt því hann var alltaf svona á svipinn...)

Á næsta föstudag, 18. júlí, ætlum við að fara til Danmerkur með Elínu vinkonu okkar. Við ætlum að fara til Kolding, þar sem við bjuggum fyrri hluta árs 2006. Þar fáum við að búa frítt hjá vinkonum okkar sem eru danskar. Það verður fróðlegt að vita hvernig gengur hjá Jónatan að skilja dönskuna. Við komum svo aftur til landsins 25. júlí og förum suður 27. júlí. Hér er að lokum mynd af Pjakki letidýri, en Jónatan hefur afskaplega gaman af að leika sér við hann og Pjakki líður voða vel að hafa okkur mæðgin hjá sér á daginn þegar Hulda er í vinnunni. Bless í bili!

Ferđalag á guttanum
19. maí 2008 klukkan 23:44
Sælt veri fólkið! Nú er sumarið á leiðinni og ýmislegt hefur verið brallað frá hlaupabólutíðinni í febrúar.
Jónatan er búinn að skreppa í Hólminn, á Dalvíkina og Akureyrina. Um páskana fórum við mæðgin norður. Jónatan var farinn nokkrum dögum á undan til ömmu Sissu og var þar í góðu yfirlæti. Hann var rosa glaður að hitta múttu sína á miðvikudeginum. Hann skrapp líka til Dalvíkur um páskana og við fórum líka á Tjörnesið í fjölskylduboð. Á leiðinni suður aftur klessti múttan bílinn, en það var ekki alvarlegt og enginn meiddi sig neitt. Bévítans hálkan var ekki að gera sig á heilsársdekkjunum. Múttan skrapp svo til Berlínar og á meðan var guttinn hjá pabba og skrapp líka í Hólminn. Nú og svo var skroppið norður um hvítasunnuhelgina. Jónatan naut þess að hitta fjölskylduna á Akureyri og svo fór hann líka í fermingarveislu á Dalvík, hjá henni Sjöfn frænku. Nú kemur svo pabbinn bráðum í land og verður lengi í landi svo það verður eintóm gleði hjá þeim feðgum þegar þeir hittast. Svo skreppum við mægðin norður um mánaðarmótin júní-júlí og verðum þar í rólegheitum þar til við förum til DK frá 18.-25. júlí.

Hlaupabólan og afmćli
10. febrúar 2008 klukkan 23:21
Já, nú er drengurinn orðinn 5 ára! Það er nú aldeilis stutt síðan hann kom í heiminn, en svona líður tíminn hjá eins og eldibrandur. Hér í Daltúninu var haldin heljarinnar veisla, þar sem saman voru komnir vinir og ættingjar. Best af öllu var þó að fá afa Jón og ömmu Sissu í heimsókn yfir afmælishelgina, drengurinn var hinn sælasti með það. Gjafirnar þóttu líka prýðisgóðar, það voru ýmist Turtles kallar, Playmo eða riddarar, ekki slæmt. Mútterin gaf honum Turtles bíl sem vakti mikla lukku. 
Nú hefur Jónatan alfarið verið hjá mútterinni, nema um síðustu helgi var hann með afa Jónatan og ömmu Sjöfn og líka Nonna frænda. Hann fór á körfuboltaleik þar sem hann hvatti Snæfell og kom meira að segja í sjónvarpinu í leiðinni. Hann sagði mútterinni afar stoltur frá því atviki. Nú, þegar drengurinn kom heim á sunnudegi var hann allur að steypast út í litlum rauðum dílum sem heita því góða nafni, hlaupabóla. Fyrir vikið voru mæðginin heima frá sunnudegi til föstudags, en þá ákváðu þau að mæta í leikskólann.
Á föstudagskvöld mætti hér galvaskur frændi nokkur sem ber nafnið Benóný Helgi og fékk meira að segja að gista og mútterin hans líka. Gott að eiga góða að í borg óttans. Núna um helgina fékk Jónatan einmitt að dvelja hjá þeim mæðginum á meðan mútterin hans þóttist vita eitthvað um tískustramana í dag í versluninni Monsoon/Accessorize. Svo nú er mútterin lúin og ætlar að segja þetta gott í bili. Myndir fara bráðlega að koma inn...
Knús og kossar úr borg óttans...

Amma Sissa var í heimsókn
20. nóvember 2007 klukkan 20:10
Hún amma var í heimsókn hjá okkur í heila viku. Það var nú aldeilis gott að hafa hana, sérstaklega þegar mamma varð lasin. Ég hélt að hún ætlaði að búa hjá okkur, en afi kom og sótti hana. Ég fékk samt ekkert að hitta afa, því að ég var hjá pabba mínum um síðustu helgi. En það gerði ekki svo mikið til, því helgina áður vorum við mamma á Akureyri og hittum afa þá. Núna á fimmtudaginn ætla Mæja, Addi og Alexander að koma í heimsókn til okkar og gista í 4 nætur. Á föstudaginn ætlar Linda frænka líka að koma með flugvél. Það verður því mjög gaman hjá okkur um helgina.
Við minnum á heimasíðu leikskólans, en þar eru allir svo duglegir að setja inn myndir og vídeó af hópastarfinu, endilega kíkið. Jónatans hópur heitir prinsessu- og kóngahópur.
Bless í bili,
Jónatan (skrifað af mömmu, með Jónatan í fanginu)

Töffarinn á leiđ norđur
06. nóvember 2007 klukkan 22:37
Já, við erum á leið norður á föstudaginn og við hlökkum mikið til að hitta alla 
Við erum að hugsa um að skreppa á Dalvík á laugardaginn og kíkja á fólkið okkar þar og svo munum við hafa það gott hjá ömmu Sissu og afa Jóni, vei, vei!!

Gott ađ búa í Kópavogi
28. október 2007 klukkan 23:43
Sælinú! Nú er alveg að koma nóvember og Jónatan er að farast úr spenningi yfir að fara í Toys 'R' Us, en við höfum enn ekki farið í þá víðfrægu verslun. Það verður afmæli hjá Bjarka á laugardaginn og það verður eflaust stuð þar á bæ. Við erum búin að plana norðurferð 9. nóvember, þ.e. ef færð og veður leyfir. Annars er mest lítið í fréttum, nema Jónatan hitti Benjamín vin sinn í gær og þeir léku aðeins saman á meðan Hulda og mamma spjölluðu í eldhúsinu. 
Á þriðjudaginn erum við svo boðin í mat til Beggu og Benna, það verður nú ekki leiðinlegt!
Annars bendum við á leikskólasíðuna, þar eru myndir og fréttir af leikskólastarfinu, farið í "hópastarf" vinstra megin á síðunni og það er "prinsessu og kóngahópur"

Ný bloggsíđa!
21. október 2007 klukkan 22:30
Já, mamma ákvað að gera nýja síðu handa Jónatan. Héðan úr Kópavoginum er lítið að frétta. Jónatan var hjá pabba sínum núna um helgina og fór m.a. í afmæli hjá strák á leikskólanum. Um næstu helgi verður rólegt hjá mæðginum en við erum að hugsa um að skreppa norður 9. nóvember, við erum samt ekki alveg ákveðin. 
Þá var það ekki fleira að sinni, ekki vera hrædd við að skrifa athugasemdir eða í gestabókina...